zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Björn Ingi Hrafnsson
Grjótkastið
News Commentary
Icelandic
Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.
Website
Episodes
Episodes
67
18 May 2026
Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga
Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.
48 min
15 April 2026
Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta
Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.
42 min
09 April 2026
Baráttan um Ísland
Björgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.
1 h 16 min
31 March 2026
Hvar ertu litla saklausa Ísland?
Í þessum þætti:Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni?Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt?Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna.Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar?Munu kjósendur vilja...
1 h 14 min
24 March 2026
Féllust seðlabankastjóra hendur?
Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu?Í...
52 min
16 March 2026
Skuggabankastjórnin: Kreppuverðbólga í kortunum
Þeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska vinnumarkaðsmódelið, Evrópuleiðangur ríkisstjórnarinnar, óvissuna á alþjóðamarkaði, vöxt báknsins og gengi krónunnar svo eitthvað sé nefnt.
53 min
24 November 2025
Sótt að landsbyggðinni úr öllum áttum
Sótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv. ráðherra og Þórarins Inga Péturssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Þeir fara yfir pólitíska sviðið, stefnu og stöðu ríkisstjórnarinnar og sóknarfæri stjórnarandstöðunnar í snörpu spjalli.
53 min
14 November 2025
Skuggabankastjórnin spáir óvæntri vaxtalækkun
Skuggabankastjórn Grjótkastsins kemur saman á mikilvægum fundi og spáir í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans. Hvaða staða er að teiknast upp í íslensku efnahagslífi og hvernig þarf að bregðast við? Þáttur sem telst skylduhlustun.
1 h 16 min
04 November 2025
Það er töff að vera trúaður
Söngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann máli. Hvers vegna er aukinn trúarleg vakning meðal ungs fólks? Hvaða áhrif hafði morðið á Charlie Kirk? Hversu miklu máli skiptir kristin trú í okkar daglega lífi og er ekki bara allt í...
48 min
31 October 2025
Allt um botnfrosinn fasteignamarkað á mannamáli
Ómar Rafnsson er byggingaverktaki til áratuga og gömul knattspyrnukempa. Hannes Steindórsson hefur selt fasteignir um árabil. Þeir vita hvað þeir syngja, þegar kemur að stórfurðulegri stöðu á íslenskum fasteignamarkaði og deila pælingum sínum og stöðumati með þjóðinni.
1 h 0 min